Lífið í Helluvaði
09.08.2010 19:14:11 / asaogdrengene

Skólatíð framundan

Eftir tvo daga hefur örverpið skólagöngu sína...búið að kaupa skólatösku og pennaveski og alles, mikill spenningur í lofti og skólinn okkar litli hérna í Helluvaði gerir þetta alveg listilega vel :d Allir vel upplýstir, skólavistunin á skólalóðinni og litli snúður búinn að fá að prófa hana og þekkir allar aðstæður, skólavinurinn í 4.bekk tekur á móti honum með fánaveifu og alles á fimmtudaginn á meðan foreldrunum er barasta boðið í kaffi :p Dejligt. Var búin að ganga frá fríi fyrir mig á fimmtudaginn þannig að ég geti fylgst með prinsinum mínum..og klökknað pínu yfir þessum tímamótum 8):s:|
Gamla auðvitað byrjuð í sínum skóla, nemendurnir mínir mættu yfirspenntir s.l. sunnudag, með bílinn fullan af dóti og hjólið á stönginni á króknum. Búið að vera rosalega gaman að kynnast þessum krökkum, vorum í stjörnuhlaupi í morgun og svo hjóluðum við til næsta bæjar þar sem þau voru lóðsuð um bæinn og sýnt hvar allir mikilvægir staðir væru, læknahúsið, bókasafnið, pízzerían, sundlaugin og líkamsræktarstöðin svo fátt eitt sé nefnt. Ég er með rólegan og góðan umsjónarhóp, sem er tilbúinn að fórna sér fyrir liðsheildina 8| svo það hefur verið stuð hjá okkur. Framundan er svo meira hópefli, kanóferð og fleira skemmtilegt, smá kynning á valfögum og skólastarfinu og svo hefst námið af fullum krafti í næstu viku. Í vetur verð ég ekki með neina morgunvakt, svo ég geti sinnt litla peyjanum mínum að fara í skólann á hverjum morgni - en áfram með fínu kvöldvaktina mína á fimmtudögum. Ég hlakka mikið til vetrarins, nú er ég alveg komin í essið mitt með verkefnabanka og fleira og get tekið enn betur á :lol::o8)
Í síðustu viku fórum við í smáskrens til Þýskalands, gistum á sætu Landhotel í Niedersachsen, hittum gott fólk sem við höfum ekki séð í laaangan tíma og áttum ágætis ferð saman fjölskyldan. Reyndar vorum við illa bitin af mücken, sem er n.k. mýbit sem þyrsti í íslenskt og ferskt blóð!!! Við fórum því fyrr heim en áætlað var, var búin að kaupa upp hálft apótek á leiðinni og bera á smyrsl og fleira græðandi - en Heima er best, þegar maður hefur það svona!!  Næst verðum við búin að háma í okkur B-vítamín og verðum betur undirbúin!
Gaman væri að fá fleiri skrifleg kvitt hér á síðuna - svona rétt til að sjá hverjir líta inn, sé bara 30 til 40 innlit á hvurjum degi, en engum bregða fyrir.
Með skólakveðjum frá Helluvaði :lol:

» 1 hafa sagt sína skoðun

13.07.2010 10:09:59 / asaogdrengene

Nýjar myndir

Looooksins - undir Sumar 2010 !!8|:d:lol::o:p:haha:;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.07.2010 09:42:32 / asaogdrengene

Ljúf helgi að baki

Helgin var góð fyrir hjartatetrið í mömmunni, sem naut þess að hafa alla drengina sína hjá sér :p:lol: Við náðum í Björn Þór til Köben á laugardeginum, hann hafði ákveðið að vinna þennan laugardag þrátt fyrir 33 gráðu hita...í skugga!! Hann var því vel sveittur þegar við hittum á hann í svefnbúðum við Ugandavej í Köben;):(:|  Ferðin okkar var þó notaleg þar sem við erum með góða loftkælingu í bílnum. Valþór var heima að matbúa, svo við komum bara í stórsteikina og gúmmelaði rétt um 6 leytið - voða næs. Helgin leið fljótt við kúr og hyggeligheit, vatnsslag og veiðar, og Björn fór svo með lestinni á mánudagsmorgni - á ekki að byrja að vinna fyrr en klukkan 2 á mánudegi. Hann kemur svo til okkar aftur um næstu helgi - og þá vonandi á föstudagskvöldi svo helgin verði pínu lengri <3<3
Það er svo gaman að fylgjast með þessum flottu strákum mínum, Björn Þór hefur svo skemmtilegt lag á þeim stutta og nennir að þrasa í honum á jákvæðan hátt - sem sá stutti nýtur. Það er nefnilega ekki alltaf auðvelt að vera minnstur, og steingeitinni minni langar oft til að vera stór eins og hinir og mega gera meira :p  Björn stríðir svo Valþóri alveg hægri vinstri, svo Valþór veit vart í sinn haus, og svo kljást þeir, annar sterkari og hinn stærri....thíhíhí...Móðurhjartað var því alveg yfirfullt þessa helgina, alveg yyyyyyndislegt <3<3   Þetta er auðvitað alveg sérstakt að fá að hafa hann hér þessar vikur, akkúrat þegar ég er í sumarfríi og hef meiri tíma og við höfum möguleika á að vera meira saman. Guðsgjöf!
Annars er verið að kæla húsið niður í dag, lofthitinn úti er rétt um 22 gráður og skýjað, svo allir gluggar eru opnir og látið blása í gegn. Eftir hitabylgju síðustu daga var farið að volgna innandyra, þrátt fyrir vindvélarnar !!  Í gær brast svo á með myndarlegu þrumuveðri, mældust yfir 34þúsund eldingar í Danmörkinni einni :!::!::!: svo hér rigndi, looooooooksins, grasflatir flestar orðnar brenndar af sól og þurrki og hita síðustu vikna. Sólin er svo væntanlega á morgun aftur, en sem betur fer bara með 25 gráðum 8)
Ætla að prófa að setja inn myndir á eftir,
með sumarkveðjum frá Helluvaði<3<3

» 1 hafa sagt sína skoðun

07.07.2010 09:54:30 / asaogdrengene

Sumarfréttir

:haha: Margt hefur á dagana drifið síðan ég skrifaði síðast...helmingur heimilisfólksins kominn í sumarfrí og looooksins er danska sumarið komið líka 8):o:haha: Vorum með hitabylgju um síðustu helgi, bara strandferðir og notalegheit, og svo bara síesta um miðjan daginn til að forðast hitann:!:  Danir keyra herferð þar sem þeir vara við sólinni og skora á sólardýrkendur að nota sólvörn, sólhatt og taka síestu milli 12 og 15 til að forðast verstu geislana. Við berum því á okkur alveg hægri vinstri til að passa nú húðina ;) 
Aðalfréttirnir eru nú hann Björn Þór okkar :!:8|:!:  Honum var sumsé boðin vinna í Danmörkinni af hálfu Ístaks :!::!::!:  svo nú er piltur bara búsettur í hjólhýsahverfi í Tårnby í kóngsins Köbenhavn og vinnur við hraðbrautarstækkun á Sjálandi 8|:lol::haha: Jebb, svona eru tíðindin á eyrinni. Getur ekki verið betra þar sem þessi dvöl hans hittir nú akkúrat á sumarleyfistímann og því auðveldara fyrir okkur að gera einhverja hluti saman. Snæþór telur niður dagana þar til við náum í pilt núna um næstu helgi, hann er víst að vinna fram á föstudagskvöld, svo við náum í hann þegar hann losnar. Afar notalegt fyrir stóra móðurhjartað að fá stóra gullklumpinn sinn svona nálægt - auðvitað fengum við afar góða og mikla heimsókn frá stærstum hluta móðurfjölskyldunnar til okkar í kringum fermingu, en þar sem við höfðum nú ákveðið að fara ekkert til Íslands þetta árið, þá hittir þetta barasta alveg dásamlega vel.
Svo er nú von á heimsóknum frá góðum Dalvíkingum núna í júlí, Valþór bíður spenntur eftir Degi vini sínum og Snæþór hlakkar til að fá Kristínu sína og Súsönnu til okkar, það stefnir því í mikið fjör í Íslendingahúsinu í Helluvaði :lol:
Jæja, ekki þýðir að láta sólina vera einmana þarna úti, best að smyrja á sig og snúa nefinu til himins...sumarkveðjur og knús til allra sem lesa...og mikið væri nú gaman að fá smá kvitt einstaka sinnum 8|:p

» 3 hafa sagt sína skoðun

31.05.2010 10:11:45 / asaogdrengene

Rundt om Hellevad

Síðastliðinn laugardag var mikið um að vera í bænum mínum - vígsla á verkefni sem hefur staðið yfir sl.misseri sem heitir ,,Rundt om Hellevad" eða ,,umhverfis Helluvað"  Hér hafa verið lagðir göngustígar, smíðaðir bekkir og borð, prílugrindur fyrir börnin, matarkofi inni í skógi, útsýnishús uppi í skógi ásamt salerni og svo mikil endurnýjun á úti-senunni hér við ánna sem rennur í gegnum bæinn og eins hafa þar verið settir upp nokkrir smákofar og borð og bekkir sem er ætlað m.a. skólanum til útikennslu - frábær hugmynd sem hlýtur að mega nýta á fleiri stöðum. Flestöll smíð var í höndum fanga í fangelsi - svo þetta er sko alvöru samfélagsverkefni!
En laugardagurinn var sumsé hlaðinn dagskrá frá sólarupprás til sólarlags, byrjaði kl.5 í skóginum með morgungöngu - við Snæþór létum okkur nægja að mæta kl.hálfátta niður við skóla þar sem boðið var uppá traktorsferðir uppí skóg:d en þar var boðið uppá morgunmat um átta-leytið, söng og smá-afþreyingu fyrir yngri kynslóðina. M.a. var boðið uppá klifur og þar var Snæþór í essinu sínu, börnin voru sett í sérstakt belti með öryggisólum og svo uppí tré með köðlum á milli - og svo var að fikra sig áfram á höndum á línunni og eins var kaðall fyrir fæturna. Börnin þurftu svo sjálf að færa til öryggislínurnar sínar milli trjáa - ótrúlega flott - ég reyni að setja inn myndir á eftir.  Snæþór fór aftur og aftur, algjör apaköttur:lol: og ekki vitund hræddur við þónokkra lofthæð yfir jörðu. Svo var auðvitað bál, þar sem hægt var að baka ,,snur-bröd" og grilla sykurpúða og steikja sér pðnnukökur, alveg ekta danskt. Þeir eru auðvitað afar ríkir að eiga alla þessa skóga sína og leggja raunar mikið uppúr útikennslu allt frá leikskólaaldri, þar sem lögð er áhersla á að barnið læri á náttúruna. Það má m.a.s. kveikja varðeld heima við hús og velflestir eiga líka svona úti-eldstæði af einhverri stærðargráðu.
Já, fjallahjólakeppni, morgunhlaup, trjáklifur, varðeldur og föndur var í gangi fram undir hádegi, þá var boðið uppá traktorsferð um alla nýju stígana og svo heim í bæ. Eftir hádegið hélt svo dagskráin áfram á ,,Gustes Eng" sem er smá túnbleðill niður við ánna þar sem úti-senan er, þar fór fram formleg vígsla, presturinn blessaði gjörninginn og mannskapinn og svo var músík og galdrakall fyrir börnin, öl og gos í tjaldinu og svo var öllum boðið í mat um kvöldið. Verulega gaman í alla staði. Guðmundur var að vinna allan laugardaginn en náði þó að koma seinnipartinn og vera með í matnum og hyggelígheitunum :d
Svo var það Júróvísjón um kvöldið - eða Melodi Grand Prix eins og það heitir hér á meginlandinu - flott framlag Íslendinga náði ekki uppá pallborðið þetta kvöldið - er þetta ekki allt ein mafía - allir að þakka Þjóðverjum fyrir að bjarga fjármálum Evrópu ? 

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.05.2010 11:02:03 / asaogdrengene

Fréttabrot

Orðið allt of langt síðan síðast - blessuð feisbúkkin farin að fullnægja fréttaþörf húsmóðurinnar :whut: svo þessi síða situr á hakanum.
Ferming drengsins okkar tókst glimrandi vel, velflestir gestir frá Íslandi komust til okkar í gegnum öskuskýin - svo hér var mikið líf og fjör í Íslendingahúsi í Helluvaði þegar sem flestir voru. Litlu prinsessurnar hans Svenna bróður voru yndislegar og eru auðvitað algjörar dúllur sem er yndislegt að fá að njóta. Snæþór baðaði sig svo í athygli frænda sinna Þórhalls og Andra Snæs - svo allir fengu sitt :lol:  Fermingardrengurinn er afar lukkulegur með daginn sinn, maturinn tókst vel - hann hafði beðið um lunda á matseðilinn og svo slógum við um okkur með íslensku lambakjéti sem er auðvitað öngvu líkt !! Marengsterturnar í slúttin toppuðu svo gjörninginn fullkomlega.  Valþór fór svo í fermingarferðalag á mánudeginum með hópnum sínum - farið til Árósa og trallað í tívólí og fleira. Skilst að sumar fermingardömurnar hafi eytt laglega í föt í göngugötunni - en minn piltur er nú svo nægjusamur - hann keypti bara tölvumús handa litla bróa sínum - sem var eitthvað sem þeir höfðu ákveðið sín á milli ;)  Björn Þór var svo hjá okkur fram á miðvikudag - hefði helst viljað hafa hann miiiiiiklu lengur - það kemur vonandi síðar.  Buðum honum í go-kart síðasta kvöldið þar sem hann og Valþór spýttu vel í bílkerrurnar !! :p8) Set inn myndir síðar af herlegheitunum.
Valþór er í augnablikinu staddur á Íslandi - hann kom þar vinum sínum á Dalvíkinni á óvart - en þar var verið að ferma um síðustu helgi, mætti sem surprise hjá Degi vini sínum og mér skilst að þar hafi heldur betur orðið fagnaðarfundir. Dásamlegt að geta veitt honum þetta, duglega drengnum mínum :)
Svo er bara beðið eftir sumrinu og skólalokum - sumarið kemur ansi hægt - maí mánuður orðinn nú þegar 2,5 gráðum kaldari en maí 2009 og 3,5 gráðum kaldari en maí 2008!!!  svo við kyndum enn upp öðru hvoru í arninum.
Prófin byrja svo í næstu viku í skólanum mínum og þá fer ég nú víst í frí ....meira en minna, en vinnuskylda okkar í svona prófatörn breytist mikið - og þar sem ég hef svo ,,mörg" bókleg fög þá fæ ég fulllllllt af fríi. Ég hlakka bara til að njóta lífsins, sumarið hlýtur að koma núna í júní :p
Sumarkveðjur yfir Atlantsála,
Áslaug og guttarnir

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.04.2010 22:37:35 / asaogdrengene

Ferming að bresta á ;)

Já, svei mér þá, allt að verða klárt í Íslendingahúsinu í Helluvaði - gestirnir tínast inn einn af öðrum og búin að vera mikil spenna í loftinu síðustu daga og vikur....verða gestir frá Íslandi í veislunni....eða ekki :(   Eftir mikið ferðalag komu pabbi og mamma ásamt Svenna bróður og fjölskyldu um hádegisbil í gær, eftir kvöldflug, lendingu um nótt á Kastrup, bið og lúr á gólfinu þar, þartil bílaleigan opnaði ...svo það var sko ekki búið að sofa mikið þann sólarhringinn. 8|8| Fólkið var þó býsna bratt og við hér afar hamingjusöm að fá þau til okkar - hefði verið óhugsandi að halda hér veislu án þeirra. Í dag komu svo feðgarnir Runólfur og Þórhallur - svo sætir með lestinni til Rödekro, þeir sluppu alveg við að sofa á gólfinu í Kastrup !! Björn Þór okkar er svo vonandi að koma til okkar á morgun, svo þá fer nú að verða fullmannað, vantar auðvitað Teddý og Júlíu okkar, Hafdísi hans Björns og svo auðvitað ömmu Gerðu, sem hefur lofað að koma síðar. Fleiri höfðu ekki boðað komu sína í ferminguna....ekki nema það komi einhverjir óvæntir gestir?? Maður veit náttlega aldrei - hefði verið stórkostlegt ef einhvurjir Dalvíkingar hefðu séð sér fært að komast.  Svo er það nú ,,danska" fjölskyldan okkar sem ætlar að fagna með okkur, þ.e. vinir okkar hér í Danaveldi, og svo nokkrir alvöru danskir sem við höfum kynnst á sl. tæpu tveimur árum. Þetta stefnir því allt í góðan dag með góðu fólki. :d:d:d
Var í Flensborg í dag að versla inn fyrir herlegheitin, hér í Dk er frídagur í dag og því var hálf danska þjóðin á vappi í göngugötunni í Flensborg nú eða í mollunum ;)  Ég slapp þó nokkuð vel með túrinn. Morgundagurinn fer því í aðalundirbúninginn - svona þegar verður búið að gefa á garðann um morguninn - mikið fjör hér með mörgum börnum og nú er sko borðað á tveimur borðum á Hovedgaden!!
Kveð með stæl -
Áslaug og fermingarfjölskyldan

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.04.2010 11:41:37 / asaogdrengene

Fermingarundirbúningur í eldgosi !

Nú þarf kjella að fara að slá undir nára í fermingarundirbúningi - margt klárt en líka nokkur smáatriði sem taka oft lengri tíma en ætlað er;) Svo stendur okkur ekki á sama um ættingja og vini sem voru búnir að tilkynna komu sína til okkar...sem komast kannski ekki vegna eldgossins :$ Biðjum máttarvöldin um að vera okkur hjálpleg í þeim efnum - má ekki finna tappa í gíginn??? :lol:
Þetta er auðvitað ekkert grín - alveg rosalegt að sjá myndir af þessum hamförum og sjá að fólk flýr orðið heimili sín :|  Alheimsáhrifin eru ótrúleg, flug í álfunni liggur meira og minna niðri, sem þýðir reyndar að rútu- og lestarsamgöngur standa í miklum blóma og þau fyrirtæki fá óvænt aukafjármagn!! Hótelin græða á tá og fingri og hækka prísana á mínútufresti - hótelherbergi við Kaupmannahafnarflugvell sem kostar alla jafna 800 kr. danskar kostar núna 1.500 danskar!!!!!  Þvílíkt svínarí!! Þá verða leigubílstjórar að hafa passann sinn með í vinnuna þessa dagana, því þeir eru beðnir um að keyra álfuna þvera og endilanga - kostar víst 15.000 danskar með limmósínu til Parísar svo dæmi se nefnt, og um 30.000 dkr. til Mílanó á Ítalíu 8|8|
Jæja, ætla að umplanta sólblómunum mínum í dag og græja nokkur sumarblóm. Vorið er í algleymi og notalegt að vera svona mikið utandyra. Var á síðustu helgarvaktinni minni í gær og með foreldraviðtöl sl.föstudag svo það á að njóta lífsins í dag. Við hugsum líka til ættingja og vina á Dalvíkinni - þar er verið að ferma Úlfar okkar Valsson í dag - við hugsum til þeirra allra og vitum að þau njóta dagsins vel. Fá alla vega margt gott í gogginn veit eg. :d
Over and out frá vorinu í DK.

» 1 hafa sagt sína skoðun

31.03.2010 09:22:06 / asaogdrengene

Páskafrí, páskafrí, páskafrí,frí,frí, frí...

Njótum lífsins saman fjölskyldan, Gummi á sínum síðasta vinnudegi fyrir sitt frí, en við hin byrjuð að hafa það gott :d  Vorið reynir af bestu getu að yfirtaka veturinn, en það gengur býsna hægt...;)  stundum bara gluggaveður í boði. Bændur hafa farið berserksgang í áburðar-og fræsáningu undanfarna daga og græjurnar sem þeir eiga...maður minn, maður horfir barasta til himins upp á þessi stórvirku tæki.8|8| Þeir yrðu glaðir á Fróni ef þeir ættu svona!! Allavega þessa ótrúlegu skítadreifara sem plægja skítinn niður í leiðinni - því Daninn bannar jú að bera á, si svona á gamla mátann. Það er því sjaldan sveitailmur í lofti - nema barasta ef maður lendir á eftir græjunum á vegunum 8|   Svo eru sett upp hálkumerki :s við vegina ef moldin og skíturinn er orðinn of mikill hehe... Grasið er allavega byrjað að spretta og líður að fyrsta slætti, og vetrarsæðið hjá bændum byrjað að taka vel við sér.
Við erum því aðeins byrjuð í garðinum, búin að kaupa útsæði, ekki nema 14 tegundir sem voru í boði 8| allt eftir því hvort maður vill síðbúna uppskeru, litlar kartöflur, salatkartöflur, mjölmiklar kartöflur, kartöflur sem siður eiga hættu á sveppi og svo framvegis.... Svo gátum við ekki stillt okkur um að kaupa bláberjaplöntur, 3 saman í bakka, ein heitir Julia, næsta Augusta og hin þriðja Septa...jú, því þá hefur maður sko bláber frá júlí til september, já Danir mega eiga það að vera sniðugir í garðyrkjunni :p
Já, Erna mín Þórey, fermingarundirbúningur er skemmtilegur, er að telja sængurnar og koddana, því hér verður fullt hús af ættingjum :haha: Svo er svo gaman að fylgjst með (og bara obbolítið að skipta sér af) hjá hinum fermingarbörnunum í DK, því þau eru nú að fermast hér líka, Sigfús hennar Rannveigar, Emilía þeirra Halldórs og Ingu Rósar, Valþór okkar og svo var verið að ferma hana Ásrúnu, þeirra Gullu og Árna, um síðustu helgi. Svo þú átt nú svolítið í fermingarbörnunum hér á meginlandinu :haha:
Með páskafrískveðjum...

» 3 hafa sagt sína skoðun

20.03.2010 21:36:05 / asaogdrengene

Jafndægur á vori..

...í dag og dmi.dk spáir hlýnandi framundan - allt upp í 15 stig meira að segja!! 8):d   Í tilefni dagsins voru m.a.s. steiktar kleinur hér í Helluvaði !!! Svo er alltaf verið að gera einhverjar tilraunir í eldhúsinu, í dag var það kanilterta úr glúteinlausu mjöli, kókosolíu í stað smörs og Agavesýróp í stað sykurs - niðurstaðan braggggggðaðist dásamlega 8|:lol:  Við vorum bara tvö heima í dag, við Sæsó ...með kettinum Skugga auðvitað - svo það var voða huggulegt hjá okkur. Gummi að bátast í Egernsundi og Valþór...hvar annars staðar en hjá Jens vini sínum auðvitað. :)
Um síðustu helgi átti ég helgarvakt á skólanum, rólegt og fínt, Disney-maraþon og huggó, og ég náði líka að skipuleggja mig fyrir prófatörnina í maí og júní. Kærkomið brölt. Guðmundur tók sig til og reif niður eldhúsinnrettinguna, setti undir nýjan og hærri sökkul, svo nú er eldhúsið alveg sem nýtt - hann stóð sig aldeilis vel, sá gamli :lol::lol:
Svo fer nú að bresta á smá-fermingar-fiðringur í mig - þarf að fara spá og spekúlera í smáatriðunum bráðum - aðalatriðin eru auðvitað löngu planlögð. Vantar m.a. hluta af fatnaði fermingardrengsins - en við hin erum klár. :p
Kæru vinir, fer nú brátt að hætta þessu blogg-brölti; þetta er reyndar ágætis dagbók sem ég hef flett uppí öðru hvoru - en meginmarkmiðunum er svosem náð að öðru leyti.
Hafið það gott yfir páskana -
Ása og guttarnir

» 2 hafa sagt sína skoðun

07.03.2010 12:17:30 / asaogdrengene

Bakslag í vorinu?

Snjóaði heilan helling hjá okkur á föstudaginn, og svo var 18 stiga frost í nótt - svo hér er afar jólalegt um að litast :haha:  Spáin er fín fyrir vikuna, fullt af plúsgráðum - svo við erum vongóð ;)8):d  Notaleg helgi í Hellevad, bauð til mín 2 færeyskum nemendum mínum úr skólanum - svona svo þær komist nú líka burtu frá skólanum um helgar! Skreppa víst ekki alveg heim í helgarfrí !! Þær snúast í kringum sjarmatröllið litla, voða sætar. :p  Gaman að hafa þær.
Annars allt gott - nú fer takturinn aftur í gang, aaaaalveg fram að páskum, mér finnst ég vera búin í fríi allan febrúar - fyrst notalegt vetrarfrí með stóra gullmolanum mínum og svo frí vegna námsferðar skólans til Írlands - mér tókst samt alveg að nota þessa daga vel, en er líka ánægð að komast í gang aftur 8)  Maður hefur jú alltaf svo mikla þörf fyrir að láta ljós sitt skína, er það ekki ? :d:lol:
Svo hefur landinn skorið úr um Icesave - kemur auðvitað engum á óvart, og enginn að berjast fyrir þessum samningum, svo staðan var augljós fyrirfram.
Þorskastríðið við Breta heldur því áfram 
með baráttukveðjum frá meginlandinu :p

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.02.2010 14:50:49 / asaogdrengene

Vorfiðringur í gömlu!!

Snjórinn súnkar hratt og við gömlu bara í vorfíling hehehe:haha: Kannski ekki seinna vænna, danska dagatalið segir fyrsta í vori á morgun, við hljótum að þurfa að taka mark á því :lol: Jólatréið úti var loksins tekið niður - búið að standa uppi síðan í nóvemberlok, svo það var búið að gleðja okkur vel. :) Skaflarnir á stéttinni mokaðir og stéttpuntið lagfært og þvegið - voða gaman. Blessaður bíllinn þveginn og ryksugaður og mér tókst líka að snúast nokkra hringi með rykinu hér innandyra líka :|:o  Nú kaupa Danir sér búnt af páskaliljum og gleðja gluggana sína, slíkt búnt kostar 5 kall danskan og er afar fallegt :p  
Við erum alveg undrandi hvað snjórinn bráðnar hratt, því ekki er nú lofthitinn mikill, rétt um 2 - 3 gráður í plús yfir daginn - en stöðugur rigningarúði svo sem, svo við sjáum víða í græna bletti á lóðinni okkar og ökrum í kring. Himinháir skaflar orðnir að litlum drulluklessum og pollar allstaðar. Maður verður sjálfsagt farinn að slá lóðina áður en langt um líður. Ótrúlegt miðað við allt snjómagnið sem var hér, bara fyrir viku síðan!! 8|
Valli hefur ekki sést þessa helgina, Jens vinur hans kominn heim frá vetrarfríinu á Spáni svo þeir eru bara búnir að vera óaðskiljanlegir - bara dejligt.:d
Ég er svo í fríi næstu daga þar sem skólaliðið mitt er í skólaferðalagi á Írlandi. Ég hlakka því mikið til að dekrast með sjálfri mér og góðum vinkonum :haha::haha::haha:
Með góðum kveðjum í snjóinn á Fróni :p

» 2 hafa sagt sína skoðun

19.02.2010 22:36:50 / asaogdrengene

Góð vika með gullmolunum

Björn Þór minn búinn að vera hjá okkur í viku, ásamt spúsu sinni Hafdísi :)  Yndislegur tími - gaman að fylgjast með bræðrunum saman - og virkilega nauðsynlegt að ná svona góðum tíma saman.   Snæþór spáði mikið í hlutina, spurði m.a. einu sinni  eftir því hvort ég væri líka mamma Björns Þórs?? Honum fannst þetta pínu undarlegt allavega :$:haha:
Við áttum góðan tíma saman og eitt og annað brallað, mikið spilað og spjallað :lol::lol: Vetrarfríinu okkar er svo alveg að ljúka - á mánudaginn hefst skólinn aftur ;)  Ég er reyndar rosa heppin því liðið mitt er á leið í skólaferðalag til Írlands á föstudaginn...svo ég dett fljótlega í frí aftur - jibbbbíííí 8)   
Gummi ætlar á þorrablót til Horsens á morgun ásamt Bjarka frænda sínum og Jóni gólf - svo við kjéllingarnar (ég og Betina hans Bjarka) ætlum að elda saman og eiga saman stund - og börnin okkar líka. Ég er svo lítið fyrir þorramatinn og svo er gott fyrir kallana að fara svona saman. 
Enn ein stormviðvörunin fyrir Norður-Jótland í gangi á dmi.dk og svo er forsíðufréttin á jp.dk að það hafi mælst jarðskjálfti á Norður-Jótlandi nú í kvöld  :!::!::!:  Hvað hafa  Norðurjótarnir gert af sér eiginlega, mér er bara spurn :s:s  Fyrirsagnirnar eru allavega alveg á haus finnst mér - þetta eru ekki mjög danskar fyrirsagnir finnst mér !!
Snjórinn bráðnaði reyndar pínu oggu í dag, en það snjóaði líka í gær :$  Ég bíð bara eftir því að áhrifum El Nino fari að linna, því þá kemur vorið :d
Sendi góðar helgarkveðjur yfir hafið...<3<3

» 2 hafa sagt sína skoðun

09.02.2010 15:37:40 / asaogdrengene

Veturinn og vorið ;)

Veturinn er enn allsráðandi hér í Baunalandi - en á sama tíma er vorið aldeilis farið að láta á sér kræla.8)  Það er ekki nóg með að bíbbarnir syngi sem aldrei fyrr, heldur er sólin orðin svo sterk og bræðir vel þar sem dökkt er undir. Eins eru verslanir stútfullar af garðáhaldatilboðum, fræjum og sumarblómum. Túlipanar og vorlaukar á tilboðum hægri vinstri - og afskorin blóm á hlægilegu verði til að grípa með sér heim og gleðja augun. :lol:8|  Við fengum einmitt 40 túlipana sl. laugardag frá nágrönnum okkar þegar þeir komu til okkar í mat - svo hér eru allir gluggar fullir af sumarglaðningi í öllum regnbogans litum. Ég fékk svo líka stóran blómvönd frá starfsfélögum mínum í gær - svo eldhúsið líkist blómaverslun 8|:haha:  Ég veit að þetta gerist hratt, ÞEGAR vorið kemur, sá á færslu frá í fyrra að ég var undrandi á 20 stiga hita síðustu dagana í febrúar - því þá höfðu piltarnir mínir gert snjókalla á lóðinni 2 vikum áður. Svo ég bíð bara spennt eftir síðustu dögunum í febrúar hehehe...:lol:
Elsku stóri strákurinn minn er á leið til okkar á föstudag - og Hafdís hans með - við hlökkum obbbbossslega mikið til, komnar flugur í magann á mér að knúsa þau og eiga með þeim vikutíma :p:p

» 2 hafa sagt sína skoðun

02.02.2010 15:08:42 / asaogdrengene

...snjór...snjór...snjór...

...snjór 8| - já þetta hvíta heldur áfram að koma - nú á afmælisdegi Júlla Júl er meira og minna allt lokað, skólar og barnaheimili og einstaka fyrirtæki - strákarnir  heima - en ég fór bara í skólann minn að kenna enda er það heimavistarskóli svo enginn nemandi er sendur heim þar. :haha: Ástand á vegum la-la, hitastig rétt um frostmark svo snjórinn hleðst bara upp. Stefnum á snjókallagerð á eftir í blíðunni :haha::haha: 
Framundan er svo bara meiri snjór og kuldi - svo það er ekki vor alveg á næstunni ;) 
Já, Júlli er alveg að ná mér í aldri - en víst aldrei sprækari - enda víst í sundi með eldri borgurum seinnipartinn ;):haha::haha: Afmæliskveðjur Júlli minn - veit þú nýtur dagsins með fjölskyldunni þinni <3
Megi allar góðar vættir vera með ykkur, nú sem endranær,
með snjókveðju frá DK 8|

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13
Heimsóknir
Í dag:  11  Alls: 54776
Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti
Klukkan